1024
17.04.2006 23:09:14 / gulrot

Belgískir páskar

Belgar....eru illir. öruglega afþví þeir eru nágrannar hollendinga

"There are only two things I can't stand in this world. People who are intolerant of other people's cultures... and the Dutch. "

nema hvað...síðustu fimmtudag brá ég mér suður til að gera mig að fífli, og hvar fær maður betra tækifæri heldur en í beinni sjónvarpsútsendingu? jújú, Gettu Betur. MA vs. Versló. það hafði verið planað í viku að mæta berir að ofan og skrifa einhver skilaboð á bringuna á okkur, vorum meira segja búnir að redda 6 manns. þegar á hólmann var komið beiluðu hins vegar 4 þeirra og ég og egill þurftum því að eyða deginum í að redda fleyrum. það tókst þó á endanum og allir happy með það, svo nú er ég orðinn celeb "þarna stóri gaurinn með Á-ið á gettu betur..."

ákvað síðan að skella mér austur á land í fermingaveislu til frænda míns og frænku. ekkert mikið meira hægt að segja frá því. nema hvað...pabbi minn var í úganda(að gera guð má vita hvað) og við ætluðum að skella okkur heim saman. en nei... hann kemur ekki fyrr en á föstudaginn langa og ég þurfti því að finna mér eitthvað að gera þangað til svo ég skellti mér í fóstur til systur hans. Það var bara allskostar ágætt, horfði á fyrstu seríu af 24 og át pyslur og spilaði Mario í Nintendo 64.þá ákvað pabbi að vera svo sniðugur að nenna ekki að keyra heim heldur fljúga frekar á laugardaginn eftir(skiljanlegt þar sem maðurinn var búinn að fljúga í 20 tíma), svo ég þurfti að redda me´r fari, og kom heim á skýrdag. ekki vildi betur til en svo að þá hafði systir mín ákveðið að fá Belga(af öllu fólki) í heimsókn og gat ég því ekki verið í herberginu mínu heldur varð að vera í gestaherberginu. SEM þýðir að ég gat ekki komist í mína heitt elskuðu(tölvuna) af neinu viti *cry*.

búið að vera fínt samt síðan ég kom heim, fór á ice age 2 sem er snilld, tókum spólur og svona ámóta skemmtilegt.

og afþví mér finnst svo skemmtilegt að taka próf þá bætti ég við svona littlu fallegu prófi hérna við hliðinná *wee*

verið síðan stillt og mér til sóma

Anna Gerður skrifaði
vá heppinn að hafa verið Á-ið. Það er næstum eins og A (as in Anna, as in Anna Gerður)
Jón S. skrifaði
The Dutch! *grr*! En þetta er hlutur sem þú virðist vera góður í.. að stunda grínið. glhf

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.